Þjóðahátíð Austfirðinga 2004


Þjóðahátíð Austfirðinga verður haldin í Íþróttamiðstöðinni á Egilsstöðum þann 12. september n.k. Hátíðin hefst kl. 14:00 með opnunarathöfn. Þar mun Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri bjóða gesti velkomna og Toshiki Toma, sérstakur gestur hátíðarinnar flytja ávarp. Á opnuninni verða jafnframt flutt fjölbreytt skemmtiatriði á sviði. Á hátíðinni kynna þær þjóðir sem byggja Austurland land sitt og menningu, hver með sínu nefi. Á þessari síðu má finna upplýsingar um hátíðina.